top of page

Skilmálar

Skilmálar sem gilda um viðskipti á vefsíðu Stafróa

SKILMÁLAR
Stafrói
Dalsbyggð 4
210 Garðabær
Sími: 8929960
stafroi@stafroi.is

 

Skilmálar þessir gilda um sölu á vörum í vefverslun Stafróa. Við kaup á vörum í vefversluninni undirgengst viðskiptavinur skilmálana. Upplýsingar á vefsíðunni eru birtar með fyrirvara um bilanir, vírusa eða innsláttarvillur.

 

Afhending vöru

Afhendingartími vöru er 1 - 3 virkir dagar en gæti tekið lengri tíma á álagstímum.

Dropp afhendir pantanir á höfuðborgarsvæðinu en Pósturinn utan þess.

Afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp og Póstsins gilda um afhendingu vörunnar. Einnig er í boði að sækja pöntun eftir samkomulagi. Stafrói áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða annarra mistaka.

Verð á vöru
Verð á vefsíðu Stafróa eru í íslenskum krónum og með VSK.
Stafrói áskilur sér rétt til að breyta verðum án fyrirvara og afturkalla tilboð hvenær sem er.

 

Sendingarkostnaður - Höfuðborgarsvæðið
Á höfuðborgarsvæðinu eru vörur afhentar með Dropp.
Enginn sendingarkostnaður er ef pantað er fyrir 20.000 kr. eða meira.
Sendingarkostnaður fylgir verðskrá Dropp fyrir pantanir undir 20.000 kr.
Einnig er í boði að sækja vörur eftir samkomulagi.

 

Sendingarkostnaður - Utan höfuðborgarsvæðis
Utan höfuðborgarsvæðisins eru vörur afhentar með Póstinum.
Enginn sendingarkostnaður er ef pantað er fyrir 20.000 kr. eða meira.
Sendingarkostnaður fylgir verðskrá Póstsins fyrir pantanir undir 20.000 kr.
Einnig er í boði að sækja vörur eftir samkomulagi.

 

Skilafrestur
Réttur til að skila ógallaðri vöru er 14 dagar frá afhendingu en einnig er hægt að óska eftir breytingum á vörunni ef hún hefur ekki verið afgreidd rétt. Verð Stafróa er endurgreitt allt að 70%. Ástæðan fyrir því að hann er ekki endurgreiddur að fullu er sú að hver og einn Stafrói er sérsniðinn samkvæmt pöntun. 
 
Ef vöruskil eiga sér stað með ósk um endurgreiðslu sem nemur 70% af kaupverðinu ber að skila vörunni óskemmdri til okkar.  Endurgreiðsla frá okkur til kaupandans fer  fram eins fljótt og kostur er og eigi síðar en eftir 30 daga.
 
Endurgreiðsla er framkvæmd ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt.
Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema ef um er að ræða ranga/gallaða vöru.
Hægt er að skila vöru með því að senda hana ásamt útprentaðrikvittun til:
Stafrói Dalsbyggð 4 210 Garðabær. 

 

Tilkynna skal Stafróa um ranga eða gallaða vöru í síma: 8929960 eða með því að senda okkur póst á netfangið stafroi@stafroi.is

 

Notkun vöru
Vörur Stafróa skal nota í samræmi við lýsingu um viðeigandi notkun á vefsíðu Stafróa og samkvæmt orðsendingu sem fylgir hverjum og einum Stafróa. Stafrói er alls ekki leikfang fyrir börn heldur hönnun sem er ætlað að fegra rými með því að hengja það í loft. Ef Stafrói og stafir ásamt formum er notað á annan hátt en samkvæmt notkunarleiðbeiningum Stafróa verður fyrirtækið ekki skaðabótaskylt vegna tjóns sem af því kann eða leiða né er hægt að krefjast endurgreiðslu.

 

Breytingar á skilmálum og úrlausn deilumála
Um skilmála þessa gilda íslensk lög, þ.m.t. ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003 og laga nr. 16/2016 um neytendasamninga.
Stafrói áskilur sé rétt til þess að breyta skilmálum þessum. Breytingar taka gildi eftir útgáfu uppfærðra skilmála á vefsíðu Stafróa.
Rísi ágreiningsmál milli Stafróa og viðskiptavina félagsins skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Um vinnslu persónuupplýsinga vísast til persónuverndarstefnu Stafróa sem lesa má hér.  

bottom of page