top of page

Stafrói

10.890krPrice

Stafrói er íslensk hönnunavara sem inniheldur nafnið þitt í litríku og leikandi formi.
Hver órói er einstakur – enginn er nákvæmlega eins.

Í hverjum Stafróa eru 5 stafir og 4 form, og þú getur valið úr stjörnu, sól, skýi eða mána.

Stafrói er búinn til úr endurunnu plasti úr ónýtum leikföngum, í samstarfi við Góða Hirðinn og frumkvöðlafyrirtækið Plastplan, sem bræðir plastið í sérhönnuð stálform.
Letrið er hannað sérstaklega fyrir Stafróa og útkoman er litrík, persónuleg og umhverfisvæn.

 

Stafrói er EKKI leikfang. Óróann skal hengja í loftið þar sem barnið nær ekki til hans. Barn má einungis handleika Stafróa undir eftirliti fullorðinna. 

0/20
0/50
Quantity
    • Upplýsingar um Stafróa

      Stafrói er endurunnin hönnunarvara, framleiddur á Íslandi hjá frumkvöðlafyrirtækinu Plastplan . Í samvinnu við Góða hirðinn fáum við ónýt plastleikföng og þau eru brædd í sérhönnuð stálform og látin kólna. Þannig verða til stafir í stafrófinu í fagurlegri litablöndu. Stafahönnunin og hönnun formanna; ský, sól, máni og stjarna voru í höndum grafíska hönnuðarins Gabríels Markan. Stafrói fellur afar vel að hringrásarhagkerfinu því auk þess að vera framleiddur úr gömlum leikföngum, sem eru gagnslaus og færu annars í ruslið, þá er Stafrói 100% endurvinnanlegur. 

    • Endurgreiðsla

      Ef Stafrói er ekki eins og vonir stóðu til býðst kaupandanum endurgreiðsla sem nemur 70 % af söluverði Stafróa. Ástæðan fyrir því að ekki fæst 100% endurgreiðsla er sú að það tekur okkur tíma að sérhanna hvern Stafróa.  Kaupandi sendir Stafróa til baka og hefur samband við okkur á netfangið stafroi@stafroi.is

    • Sendingarupplýsingar

      Stafrói er laufléttur og við leitumst við að pakka honum eins vel og mögulegt er til þess að vernda vöruna án þess að kosta til of miklum umbúðum sem auka á þyngd og flutningskostnað. Kostnaður við sendingu reiknast í kaupferlinu.  Pósturinn sér um sendingar fyrir Stafróa. 

    bottom of page